Mannvirkjafréttir frá Samtökum iðnaðarins

Framleiða íbúðir til að eiga þegar landið fer að rísa
Rætt er við Vigni Steinþór Halldórsson hjá Öxa um áhrif vaxtahækkana á íbúðamarkaðinn.

Vaxtahækkun stuðlar að ójafnvægi á íbúðamarkaði
Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Fréttablaðinu um vaxtahækkun Seðlabankans.

Fundur um öryggismál í mannvirkjagerð
Fjórði fundur í gæðastjórnun í byggingariðnaði fer fram 29. mars kl. 8.30 í Vatnagörðum 20 og á Teams.

Yngri ráðgjafar kynntu starf ráðgjafarverkfræðinga
Yngri ráðgjafar voru á sýningunni Mín framtíð og kynntu starf ráðgjafarverkfræðinga.

Félagatal

Ertu með spurningu?
591 0100
Félag vinnuvélaeigenda
Félagið hefur unnið að mörgum og fjölbreyttum baráttumálum sem varða framgang greinarinnar í gegnum tíðina. Þau eru flest tengd verkalýðsmálum, útboðsmálum, tilhögun framkvæmda vítt og breitt um landið og almennu siðferði í vinnubrögðum.
Félagsmenn hafa jafnan verið eindregnir stuðningsmenn útboða og samninga um verk sem byggjast á samkeppnistilboðum. Starfsemi verktaka eykur hagsæld í landinu en til að svo megi vera þurfa þeir að eiga gott samstarf við stjórnvöld. Vinnubrögð varðandi verkefnaval og útboð þurfa að vera yfirveguð og upplýsingastreymi milli aðila gott. Lykillinn að farsælli þróun verktakastarfsemi er að streymi verkefna sé sem jafnast og komi með skipulegum hætti án tilviljana og óðagots en ekki síður að verktakinn fái sanngjarna greiðslu fyrir unnið verk
Stofnað 7. desember 1953
Félag vinnuvélaeigenda var stofnað 7. desember árið 1953 á skrifstofu Almenna byggingafélagsins hf. í Reykjavík.
Félagsmenn
Félagsmenn eru annars vegar einyrkjar sem eiga eina vél og vinna á henni sjálfir og hins vegar fyrirtæki sem eiga fleiri vélar og eru jafnframt verktakar.
Fræðslumál vinnuvélstjóra
Menntun vinnuvélstjóra og kjaramál hafa ævinlega tengst störfum Félags vinnuvélaeigenda.